Category Archives: Fréttir

Viðmiðunarverð í gildi frá 2. febrúar 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. febrúar 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur lækkar um 5,0% Óslægður þorskur lækkar um 5,0% Slægð ýsa hækkar um 10,8% Óslægð ýsa hækkar um 10,8% Ufsi helst óbreyttur Karfi helst óbreyttur Þetta á […]

Nýjar Covid leiðbeiningar fyrir öll skip

Sælir félagar, Á fundi núna rétt fyrir hádegi voru samþykktar eftirfarandi leiðbeiningar fyrir öll skip. 27. janúar 2022 Leiðbeiningar fyrir skip þar sem skipverji greinist með COVID-19 Líta skal á skip sem dvalarstað skipverja/áhafnar í skilningi reglugerðar nr. 38/2022 um sóttkví og einangrun. Greinist skipverji jákvæður á hraðprófi fyrir COVID-19 um borð í skipi skal […]

Viðmiðunarverð í gildi frá 5. janúar 2022

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur helst óbreyttur Óslægður þorskur helst óbreyttur Slægð ýsa helst óbreytt Óslægð ýsa helst óbreytt Karfi helst óbreyttur Ufsi hækkar um 3,5% Þetta á við afla sem […]

Óheimilt að nota orlofshús og íbúðir í sóttkví

Athygli félagsmanna er vakin á því að það er með öllu óheimilt að nota orlofshús og íbúðir félagsins sem stað til að vera í sóttkví.  Sjá  leiðbeiningar frá Landlækni til almennings varðandi sóttkví.  Það að nýta orlofshús og íbúðir sem sóttkví stofnar umsjónarmönnum húsanna og þeim sem koma í næstu útleigu í hættu. Þá er […]

Félagsfundur á milli hátíða

Vegna Covid er ekki hægt að halda hefðbundna félagsfundi á milli hátíða. Venjulega höfum við haft tvo fundi, einn á Akureyri og einn í Reykjavík.  Að þessu sinni verður haldinn einn fjarfundur fimmtudaginn 30. desember kl. 14.00 Við munum senda félagsmönnum tölvupóst þann 29. desember með upplýsingum um það hvernig tengjast á fundinum.  Stjórnin

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. desember 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 2% Óslægður þorskur breytist ekki Slægð ýsa hækkar um 5% Óslægð ýsa breytist ekki Karfi breytist ekki Ufsi hækkar um 16,3% Þetta á við […]

Nokkur orð um fiskeldi

Undanfarna mánuði höfum við haft samband við skipstjórnarmenn beggja eldisfyrirtækjanna á Austfjörðum og eins eldisfyrirtækis með höfuðstöðvar á norðanverðum Vestfjörðum. Markmiðið er að fá  starfsmenn þeirra til að ganga í FS svo að hægt sé að gera kjarasamning fyrir skipstjórnarmenn eldisfyrirtækja á landinu.  Á fundi með sáttasemjara síðasta vetur, með fulltrúm SFS, SA og VM, […]

Nýtt sumarhús í Fnjóskadal

Félag skipstjórnarmanna hefur fest kaup á stórglæsilegu sumarhúsi í landi Lundar í Fnjóskadal, um 25 mínútna akstur frá Akureyri um Vaðlaheiðargöng.  Hægt er að skoða myndir og lýsingu á húsinu á orlofshúsavefnum hér Húsið verður tekið í notkun þann 19. nóvember nk. Opnað verður fyrir umsóknir um dvöl í húsinu kl. 12 á hádegi fimmtudaginn […]

Félag skipstjórnarmanna notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á skipstjorn.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur