Viðmiðunarverð í gildi frá 2. júní 2023.

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. júní 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur helst óbreyttur

Ósl. þorskur helst óbreyttur

Sl. ýsa lækkar um 7,9%

Ósl. ýsa lækkar um 7,9%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi hækkar um 4,0%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. júní  2023.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.