Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 6%
Óslægður þorskur hækkar um 6%
Slægð ýsa hækkar um 6%
Óslægð ýsa hækkar um 6%
Karfi hækkar um 7%
Ufsi hækkar um 4,3%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. des. 2018.