Nýtt viðmiðunarverð 2. nóvember 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. nóv 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 10%
Óslægður þorskur hækkar um 10%
Slægð ýsa helst óbreytt

Óslægð ýsa helst óbreytt

Karfi hækkar um 10%

Ufsi hækkar um 3,3%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. nóv. 2018.