Jóna Brynja Birkisdóttir hefur verið ráðin til starfa sem sérfræðingur á skrifstofu félagsins, þar sem hún mun m.a. sjá um gagnavinnslu og greiningu gagna ásamt skýrslugerð og upplýsingagjöf.
Jóna Brynja er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri. Áður en hún hóf störf hjá félaginu starfaði hún í útflutningsdeild (logistics manager) hjá Marz Sjávarafurðum.
Við bjóðum Jónu Brynju velkomna til starfa og hlökkum virkilega til samstarfsins við hana.