Viðmiðunarverð í gildi frá 4. september 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. september 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur helst óbreyttur

Ósl. þorskur hækkar um 1,8%

Sl. ýsa helst óbreytt

Ósl. ýsa lækkar um -2,0%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. september 2023.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.