Árni Sverrisson hefur hafið störf hjá félagi skipstjornarmanna. Árni var í stjórn Öldunnar um langt árabil stundaði sjómennsku rúm 20 ár, lauk námi í útgerðartækni 1985 og hefur víðtæka reynslu til lands og sjávar. Undanfarin níu ár hefur hann starfað hjá VÍS þar sem hann hefur séð um skipatryggingar og farmtryggingar. Þar áður var hann […]
Category Archives: Fréttir
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. júní 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á eftirfarandi tegundum: Slægður þorskur lækkar um 2,7 % Óslægður þorskur lækkar um 12 % Slægð ýsa lækkar um 4,9 % Karfi lækkar um 3 % Einnig var ákveðið að hækka […]
Í dag föstudaginn 12. maí var undirritaður kjarasamningur með þeim nýju ákvæðum sem samið var um við undirmenn og vélstjóra. Undirritunin er með fyrirvara um samþykki stjórna SFS og FFSÍ. Stjórn FFSÍ hefur þegar samþykkt samninginn en stefnt er að því að sjórn FS geri það í næstu viku. Þegar sú samþykkt liggur fyrir verður […]
Kæru sjómenn Óskum ykkur, fjölskyldum, vinum og vandamönnum gleðilegs sjómannadags. Bestu kveðjur frá starfsfólki Félags skipstjórnarmanna
Aðallfundur FS verður haldinn kl.14.00 þann 30. júní á Grand Hótel í Gallerí, sal á jarðhæð Venjuleg aðalfundarstörf Léttar veitingar Félagar fjölmennið Stjórnin
Nú liggur fyrir að stjórn SFS hefur samþykkt að skipstjórnarmenn njóti 300 þúsund kr.eingreiðslu með sama hætti og aðrar stéttir fiskimanna og samningurinn í heild samþættur með samningum SSI og VM. Þeir félagsmenn sem ekki hafa nú þegar fengið eingreiðsluna, eru beðnir um að láta okkur hjá FS vita, dragist það úr hófi.
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. maí 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum ufsa um 1,3 % og karfa um 3 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. maí 2017.
Það nýjasta í málinu er að á fundi með framkvæmdastjóra og lögfræðingi SFS þann 4. apríl var farið yfir þessi mál og mér tjáð að á stjórnarfundi SFS þann 19. apríl yrði tekin ákvörðun varðandi þessa þætti. Nú þegar hafa ákveðnar útgerðir greitt sínum skipstjórnarmönnum umrædda eingreiðslu. Samningstími í kjarasamningi skipstjórnarmanna er ári skemmri en […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2017 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski, ásamt karfa um 5%. Einnig var ákveðið að hækka viðmiðunarverðið á slægðum og óslægðum ufsa um 1,8%.Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til […]
Opnað verður fyrir sumarleigu (vikuleigu) þann 1. mars 2017. Í gildi er reglan fyrstur kemur fyrstur fær.