Golfkapteinn FS árið 2019

Golfmót Félags skipstjórnarmanna var haldið í blíðskaparveðri á golfvelli GKG í gær.  Golfkapteinn ársins er Eiríkur Jónsson, hann hampar titlinum annað árið í röð.    Þátttakendur voru 32 og voru hinir ánægðustu með félagsskapinn, veðrið og súpuna í lokin eins og sjá má á meðfylgjandi myndum af þeim og verðlaunahöfum.