Framtíð siglinga – Ráðstefna í Sjómannaskólanum 27. september 2018 kl. 13:00 til 17:00 Í tilefni 70 ára afmælis Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) standa Siglingaráð og Samgöngustofa að ráðstefnunni „Arfleifð okkar – Betri skip og rekstur fyrir bjartari framtíð“ Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. http://www.imo.org/en/About/Events/WorldMaritimeDay/Pages/WMD-2018.aspx
Category Archives: Fréttir
Golfmót Félags Skipstjórnarmanna var haldið á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ í gær, þátttakendur voru 28. Sigurvegari golfmótsins 2018 var Eiríkur Jónsson skipstjóri, hann spilaði á 36 punktum. Í öðru sæti var Ragnar Ólafsson á 33 punktum og þriðji var Bjarni Bergmann Sveinsson á 32 punktum.
Á fundi úrskurðarnefndar 4. september 2018 voru gerðar eftirfarandi breytingar á fiskverði í viðskiptum milli skyldra aðila. Ákveðið var að breyta fiskverðinu á neðangreindan hátt. Slægður þorskur hækkar um 1,2% Óslægður þorskur hækkar um 7,8% Óslægð ýsa lækkar um -7,0% Karfi óbreyttur Slægð ýsa óbreytt Ufsi verður óbreyttur. Ný verð gilda frá og með sama […]
Mótið verður haldið á Hlíðarvelli GM í Mosfellsbæ mánudaginn 3. september. Fyrsti rástími er kl. 13.00. Mótið er fyrir félagsmenn og eiginkonur þeirra. Félagsmaður má taka með sér einn gest. Keppt verður um titilinn Golfkapteinn ársins. Punktakeppni. Verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Léttar veitingar að aflokinni keppni. […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. júlí 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 2,0% Óslægður þorskur hækkar um 3,1% Slægð ýsa hækkar um 2,4% Óslægð ýsa hækkar um 5,0% Karfi hækkar um 2,5% Ufsi helst óbreyttur. Þetta […]
FS. Félag skipstjórnarmanna og VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna stóðu að sameiginlegum kynningarfundi vegna nýs kjarasamning skipstjórnarmanna og vélstjóra á bátum fyrirtækja í ferðaþjónustu í gær, miðvikudaginn 27. júní 2018, en skrifað var undir samning við samtök atvinnulífsins vegna þessara starfa fimmtudaginn 21. júní 2018. Góð mæting var á fundinn og urðu miklar umræður um samninginn. […]
Í gær, þann 21. júní 2018, skrifuðu Félag skipstjórnarmanna og VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna undir kjarasamning vegna starfa skipstjórnarmanna og vélstjóra á skipum og bátum fyrirtækja í ferðaþjónustu. Félögin munu halda sameiginlegan kynningarfund miðvikudaginn 27. júní n.k. í húsi VM að stórhöfða 25, Reykjavík. Klukkan 20:00. Einnig verður boðið upp á fjarfund.
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS,LS), sem haldinn var 5.júní 2018, var ákveðið að viðmiðunarverð á fiski skv. kjarasamningum yrðu óbreytt:
Aðalfundur Félags Skipstjórnarmanna verður haldinn föstudaginn 1.júní 2018 á Grand Hótel í salnum Gullteigi á 1.hæð Kl. 14:00. Dagskrá Kosning fundarstjóra og ritara Skýrsla formanns Farið yfir ársreikninga Umræður um skýrslu formanns og ársreikninga Önnur mál Stjórnin