Category Archives: Fréttir

Nokkur orð um fiskeldi

Undanfarna mánuði höfum við haft samband við skipstjórnarmenn beggja eldisfyrirtækjanna á Austfjörðum og eins eldisfyrirtækis með höfuðstöðvar á norðanverðum Vestfjörðum. Markmiðið er að fá  starfsmenn þeirra til að ganga í FS svo að hægt sé að gera kjarasamning fyrir skipstjórnarmenn eldisfyrirtækja á landinu.  Á fundi með sáttasemjara síðasta vetur, með fulltrúm SFS, SA og VM, […]

Nýtt sumarhús í Fnjóskadal

Félag skipstjórnarmanna hefur fest kaup á stórglæsilegu sumarhúsi í landi Lundar í Fnjóskadal, um 25 mínútna akstur frá Akureyri um Vaðlaheiðargöng.  Hægt er að skoða myndir og lýsingu á húsinu á orlofshúsavefnum hér Húsið verður tekið í notkun þann 19. nóvember nk. Opnað verður fyrir umsóknir um dvöl í húsinu kl. 12 á hádegi fimmtudaginn […]

Kadettanám

Skipstjórnarskólinn hefur auglýst eftir áhugasömum nemendum í Kadettanámið sem kynnt var á síðasta aðalfundi félagsins í júní sl. og er reiknað með að það hefjist í síðasta lagi næsta vor. Einnig er fyrirhugað námskeið fyrir þá skipstjórnarmenn sem verða leiðbeinendur um borð. Fjórar útgerðir innan SFS eru tilbúnar að taka kadetta um borð í fiskiskip […]

Viðmiðunarverð í gildi frá 3. nóvember 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. nóvember 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 10,0% Óslægður þorskur hækkar um 8,0% Slægð ýsa hækkar um 13,8% Óslægð ýsa breytist ekki Karfi breytist ekki Ufsi hækkar um 3,8% Þetta á […]

Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd kynnt á fimmtudag

Fimmtudaginn 28. október 2021, kl. 10.00 -10:40, verður kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst á vormánuðum 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa. Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar, www.ktn.is . Edda Rós […]

Nýtt viðmiðunarverð 5. október 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. október 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 13% Óslægður þorskur hækkar um 7,5% Slægð ýsa hækkar um 11% Óslægð ýsa lækkar um 2,1% Karfi hækkar um 4% Slægður og óslægður […]

Fræðsluefni um brottkast

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Félag skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sameinast um gerð fræðsluefnis um brottkast. Fræðsluefnið er á veggspjaldi og í smáforriti fyrir síma. Þar er farið í nokkrum orðum um brottkast, reglur, undanþágur og úrræði. Á undanförnum árum hafa sjónir manna í auknum mæli beinst að umgengni við hafið […]

Hækkun sjúkradagpeninga frá 1. september.

Eins og kunnugt er, þá slitnaði upp úr samningaviðræðum sjómanna við SFS á fundi hjá Ríkissáttasemjara þann 7. september sl., málið er á borði Ríkissáttasemjara, honum ber lögum samkvæmt að boða til fundar á tveggja vikna fresti. Ein af kröfum sjómanna er að kauptrygging hækki á samningstímabilinu í samræmi við kauphækkanir í lífskjarasamningum, þannig að […]