Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd kynnt á fimmtudag

Fimmtudaginn 28. október 2021, kl. 10.00 -10:40, verður kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst á vormánuðum 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar, www.ktn.is . Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum.

Meðal nýjunga í skýrslunni eru:

  • Launaþróun ASÍ félaga á almennum markaði er birt sundurliðuð eftir Starfsgreinasambandinu, félögum verslunarmanna, og iðnfélögum.
  • Breytingar á grunntímakaupi allra hópa er birt skipt eftir áhrifum vinnutímatímabreytinga og annarra launabreytinga.
  • Samsetning starfa er birt á eftir starfshlutfalli og vinnufyrirkomulagi (þ.e. vaktavinnu).
  • Allir launaþættir eru nú sundurliðaðir eftir konum og körlum.
  • Launastig og launaþróun á Íslandi er sett í alþjóðlegt samhengi.

 

Tekið verður við fyrirspurnum á ktn@ktn.is meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga, auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Haustskýrslan er þriðja skýrsla nefndarinnar, og stefnt er að því að skýrslunar verði tvær ár hvert – vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn verða aðgengileg á vef Kjaratölfræðinefndar www.ktn.is frá 28. október nk. Það er von nefndarinnar að sá grunnur upplýsinga og tölfræðigagna sem settur er fram í skýrslunni nýtist haghöfum vel við mat á kjaraþróun og við undirbúning komandi kjarasamninga.

 

Félag skipstjórnarmanna notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á skipstjorn.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur