Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. nóvember 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 10,0% Óslægður þorskur hækkar um 8,0% Slægð ýsa hækkar um 13,8% Óslægð ýsa breytist ekki Karfi breytist ekki Ufsi hækkar um 3,8% Þetta á […]
Category Archives: Fréttir
Kæru félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, Það verður kaffispjall á föstudaginn 29. október frá kl. 10 til 12. Við hvetjum ykkur til að líta við, hitta félagana, spjalla og fá ykkur kaffi og kleinur. Stjórnin,
Fimmtudaginn 28. október 2021, kl. 10.00 -10:40, verður kynnt haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst á vormánuðum 2019 og er senn að ljúka, þróun efnahagsmála og launa. Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar, www.ktn.is . Edda Rós […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. október 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 13% Óslægður þorskur hækkar um 7,5% Slægð ýsa hækkar um 11% Óslægð ýsa lækkar um 2,1% Karfi hækkar um 4% Slægður og óslægður […]
Kæru félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, Það verður kaffispjall á föstudaginn 24. september frá kl. 10 til 12. Við hvetjum ykkur til að líta við, hitta félagana, spjalla og fá ykkur kaffi og kleinur. Stjórnin,
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Félag skipstjórnarmanna, Sjómannasamband Íslands og Félag vélstjóra og málmtæknimanna hafa sameinast um gerð fræðsluefnis um brottkast. Fræðsluefnið er á veggspjaldi og í smáforriti fyrir síma. Þar er farið í nokkrum orðum um brottkast, reglur, undanþágur og úrræði. Á undanförnum árum hafa sjónir manna í auknum mæli beinst að umgengni við hafið […]
Eins og kunnugt er, þá slitnaði upp úr samningaviðræðum sjómanna við SFS á fundi hjá Ríkissáttasemjara þann 7. september sl., málið er á borði Ríkissáttasemjara, honum ber lögum samkvæmt að boða til fundar á tveggja vikna fresti. Ein af kröfum sjómanna er að kauptrygging hækki á samningstímabilinu í samræmi við kauphækkanir í lífskjarasamningum, þannig að […]
Eftir árangurslausar viðræður við SFS um endurnýjun kjarasamninga sjómanna frá því að samningarnir losnuðu þann 1. desember 2019 til febrúar 2021 var ákveðið að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara í von um að eitthvað færi að ganga í viðræðunum. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara með bréfi dags. 17. febrúar 2021. Helstu kröfur sjómanna voru hækkun […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS og VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. september 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 5,6% Óslægður þorskur hækkar um 13,2% Slægð ýsa lækkar um 8,5% Óslægð ýsa hækkar um 5,2% Slægður og óslægður ufsi lækkar um 2,3% […]
Í gær fór fram árlegt golfmót FS, í Grafarholti að þessu sinni, mótið var fjölmennt (37 þáttakendur), veðrið var með ágætum, suðvestan andvari og súld, keppendur voru kátir. Golfkapteinn ársins 2021 er Halldór Ingimar Finnbjörnsson, en hann vann einnig í fyrra á Korpunni. Sjá myndir á heimasíðu félagsins Myndasöfn – Félag skipstjórnarmanna (skipstjorn.is) Úrslit flokki […]