Viðmiðunarverð í gildi frá 2. mars 2023

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2023, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 2,0%

Ósl. þorskur hækkar um 2,0%

Sl. ýsa helst óbreytt

Ósl. ýsa helst óbreytt

Karfi hækkar um 2,0%

Ufsi hækkar um 2,0%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2023.  Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.