Ellilífeyrir sjómanna Vegna umræðu um rétt sjómanna til að hefja töku ellilífeyris við 60 ára aldur tókum við saman eftirfarandi atriði til leiðbeiningar. Sá sem hefur stundað sjómennsku í 25 ár eða lengur á íslensku skipi eða skipi sem er gert út af íslenskum aðilum getur átt rétt á ellilífeyri frá 60 ára aldri. Skila […]
Author Archives: Árni Sverrirsson
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 2% Óslægður þorskur hækkar um 2% Slægð ýsa helst óbreytt Óslægð ýsa lækkar um 1% Karfi helst óbreyttur Ufsi hækkar um 1,4% Þetta á við […]
Kæru félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, Það verður kaffispjall á föstudaginn 29.nóvember frá kl. 10 til 12. Við hvetjum ykkur til að líta við, hitta félagana, spjalla og fá ykkur kaffi og kleinur. Stjórnin, Myndir frá síðasta kaffispjalli, þá mættu yfir 20 manns.
Kæru félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, Það verður kaffispjall á föstudaginn 25.október frá kl. 10 til 12. Við hvetjum ykkur til að líta við, hitta félagana, spjalla og fá ykkur kaffi, te og kleinur. Stjórnin,
Kæru félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, Á stjórnarfundi í gær var ákveðið að hafa opið hús á skrifstofu félagsins síðasta föstudag hvers mánaðar. Fyrsta kaffispjallið verður næstkomandi föstudag 27.sept frá kl. 10 til 12. Við hvetjum ykkur til að líta við, hitta félagana, spjalla og fá ykkur kaffi, te og kleinur. Stjórnin,
Félag skipstjórnarmanna hvetur konur til að afla sér skipstjórnarmenntunar, þær Ingibjörg Bryngeirsdóttir yfirstýrimaður á Herjólfi og Hallbjörg Erla Fjelsted stýrimaður hjá Landhelgisgæslunni eru góðar fyrirmyndir kvenna í stéttinni.
Sjómenn og aðrir áhugamenn um fróðlegt og skemmtilegt lesefni Blaðið okkar, Sjómannablaðið Víkingur, hefur um alllangt skeið verið -öllum aðgengilegt á timarit.is – að vísu með þeim takmörkunum að þar lýkur skoðunarmöguleikum í desember 2007. Nú hefur verið úr þessu bætt, að nokkru, á heimasíðu Félags skipstjórnarmanna. Sjá netfangið https://skipstjorn.is/vikingur/ Í þessum netheimi Félags […]
Golfmót Félags skipstjórnarmanna var haldið í blíðskaparveðri á golfvelli GKG í gær. Golfkapteinn ársins er Eiríkur Jónsson, hann hampar titlinum annað árið í röð. Þátttakendur voru 32 og voru hinir ánægðustu með félagsskapinn, veðrið og súpuna í lokin eins og sjá má á meðfylgjandi myndum af þeim og verðlaunahöfum.
Í gær kom Guðlaugur Gíslason fyrrum framkvæmdastjóri Stýrimannafélags Íslands færandi hendi með möppu sem inniheldur lista yfir 7 ljósmyndamöppur. Þau eru mörg dagsverkin sem Guðlaugur hefur unnið við skráningu ljósmynda sem teknar voru í framkvæmdastjóratíð hans við hin ýmsu tilefni. Rúmlega 600 ljósmyndum kom hann fyrir á til varðveislu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Myndirnar […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6.ágúst 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Óslægður þorskur hækkar um 5% Óslægð ýsa hækkar um 5% Ufsi hækkar um 5% Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. […]