Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. október 2022, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Sl. þorskur hækkar um 5,0%
Ósl. þorskur hækkar um 5,0%
Sl. ýsa lækkar um 8,0%
Ósl. ýsa lækkar um 8,0%
Karfi helst óbreyttur 0
Ufsi helst óbreyttur 0
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. október 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.