Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. júní 2025, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Sl. þorskur helst óbreyttur
Ósl. þorskur helst óbreyttur
Sl. ýsa helst óbreytt
Ósl. ýsa helst óbreytt
Karfi helst óbreyttur
Ufsi hækkar um 1,7%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. júní 2025. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.