Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 3. desember 2025, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Sl. þorskur hækkar um 8,0 %
Ósl. þorskur hækkar um 5,0 %
Sl. ýsa hækkar um 6,3 %
Ósl. ýsa hækkar um 6,3 %
Karfi helst óbreyttur
Ufsi lækkar um 1,5%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. desember 2025. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

