Stjórnarkjör 2024 í Félagi skipstjórnarmanna
Á þessari síðu eru upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar í Félagi skipstjórnarmanna kjörtímabilið 2024 – 2028.
Kosið er um níu sæti í aðalstjórn og níu sæti í varastjórn.
Hér fyrir neðan má sjá frambjóðendurna í stafrófsröð. Hægt er að smella á nafn eða mynd hvers og eins til að skoða nánari upplýsingar.
Rafræn kosning stendur yfir frá kl. 15:00 þann 8. maí og lýkur kl. 15:00 þann 30. maí 2024.
Úrslit kosninganna verða kynnt á aðalfundi félagsins sem haldinn verður föstudaginn 31. maí 2024 á Grand Hótel Reykjavik kl. 14:00.
Streymt verður frá fundinum.