Í gær, þann 21. júní 2018, skrifuðu Félag skipstjórnarmanna og VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna undir kjarasamning vegna starfa skipstjórnarmanna og vélstjóra á skipum og bátum fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Félögin munu halda sameiginlegan kynningarfund miðvikudaginn 27. júní n.k. í húsi VM
að stórhöfða 25, Reykjavík. Klukkan 20:00. Einnig verður boðið upp á fjarfund.