Ágætu félagsmenn FS.
Vona að sem flestir ykkar hafi haft það notalegt um verslunarmannahelgina. Nú fer hver að verða síðastur til að taka þátt í athvæðagreiðslunni um kjarasamninginn sem allir ættu að hafa haft tækifæri til að kynna sér. Skora á menn að taka afstöðu og kjósa. Ekki láta tiltölulega fámennan hóp ráða úrslitum um niðurstöðu. 8. ágúst er síðasti dagurinn sem hægt verður að taka þátt í þessari atkvæðagreiðslu. Niðurstaða verður birt þann 10. ágúst. Með félagskveðju. Árni Bjarnason.