Í dag föstudaginn 12. maí var undirritaður kjarasamningur með þeim nýju ákvæðum sem samið var um við undirmenn og vélstjóra. Undirritunin er með fyrirvara um samþykki stjórna SFS og FFSÍ. Stjórn FFSÍ hefur þegar samþykkt samninginn en stefnt er að því að sjórn FS geri það í næstu viku. Þegar sú samþykkt liggur fyrir verður samningurinn birtur á heimasíðu félagsins.