Réttindi sjómanna sem eru orðnir 60 ára eru tvennskonar.
Annars vegar a) Ellilífeyrir sjómanna og hins vegar b) réttindi sem ellilífeyrisþegi, þú þarft ekki að vera byrjaður að taka út lífeyri.
a) Umsókn um ellilífeyri 60 ára.
- Sá sem hefur stundað sjómennsku í 25 ár eða lengur á íslensku skipi eða skipi sem er gert út af íslenskum aðilum getur átt rétt á ellilífeyri frá 60 ára aldri. Skila þarf inn upplýsingum um árafjölda og daga á sjó með umsókninni. Þeir menn sem hyggjast sækja um lífeyri skv. 60 ára reglunni þurfa að: a) Sækja um á mínum síðum hjá Tryggingastofnun tr.is eða fara í afgreiðslu Tryggingastofnunar.
b) Með umsókn þarf að fylgja sönnun þess að umsækjandi hafi haft sjómennsku að aðalstarfi í 25 ár, miðað er við 180 daga á ári, þannig að heildarfjöldi lögskráningardaga þarf að vera a.m.k. 4.500 dagar. Upplýsingar um fjölda lögskráningardaga fást hjá Samgöngustofu. Ef þeir dagar sem koma fram úr rafrænu lögskráningarkerfi Samgöngustofu eru að mati umsækjenda ekki réttir, þarf viðkomandi að afla upplýsinganna, eftir atvikum úr sjóferðabókum eða hjá sýslumannsembættum, tollstjórum eða þjóðskjalasafni.
c) Með umsókn þarf að fylgja tekjuáætlun fyrir næsta ár.
d) Með umsókn þurfa að fylgja skattframtöl síðustu 2ja ára. - Áður en sjómaður sækir um ellilífeyri er ráðlegt að nota reiknivél á heimasíðu Tryggingastofnunar til að athuga hvort umsækjandi eigi rétt til ellilífeyris.
- Hægt er að sækja um leiðréttingu 2 ár aftur í tímann.
- Þegar einstaklingur öðlast stöðu ellilífeyrisþega hefur viðkomandi réttindi hjá Sjúkratryggingum eins og aðrir ellilífeyrisþegar.
b) Umsókn um réttindi sem sjómaður getur fengið sem ellilífeyrisþegi þegar hann hefur náð 60 ára aldri og 4.500 skráningardögum.
Ef sjómaður hefur starfað til sjós í 25 ár og uppfyllir 8 og 9. málsgrein 17. greinar laga nr. 100/2007 er hægt að sækja um að njóta réttinda sem aldraður þó svo þú sért ekki farinn að taka út lífeyri hjá Tryggingastofnun (TR). Til þess þarftu að leggja fram gögn um sjósókn (lögskráningardaga) sem hægt er að nálgast hjá Samgöngustofu. Dæmi um kostnað sem lækkar við þetta er tannlæknakostnaður.
Miðað er við 180 daga á ári, þannig að heildarfjöldi lögskráningardaga þarf að vera a.m.k. 4.500 dagar.
Senda þarf gögnin í Gagnaskil einstaklinga á heimasíðu Sjúktratrygginga.

