Páskaúthlutun 2026 – breytt fyrirkomulag

Kæru félagsmenn,
Gerðar hafa verið breytingar á fyrirkomulagi páskaúthlutunar. Reglan „fyrstur kemur, fyrstur fær“ fellur nú úr gildi og í staðinn verður notast við eins konar lottófyrirkomulag, þar sem kerfið dregur úr hópi umsækjenda.
Félagsmaður sem fær úthlutun um páskana getur ekki sótt um aftur fyrr en að þremur árum liðnum. Páskaútleiga í ár er frá miðvikudeginum 1. apríl til þriðjudagsins 7. apríl.
Opnað verður fyrir umsóknir um páskaúthlutun sunnudaginn 1. febrúar og umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 8. febrúar. Úthlutun fer fram mánudaginn 9. febrúar og sér kerfið sjálfkrafa um úthlutun orlofshúsanna. Ganga þarf frá greiðslu eigi síðar en fimmtudaginn 12. febrúar.
Föstudaginn 13. febrúar klukkan 12:00 verður opnað fyrir bókanir á þeim orlofshúsum sem enn eru laus. Þá gildir aftur fyrirkomulagið fyrstur kemur, fyrstur fær.
Þessar breytingar eiga eingöngu við um páskaúthlutunina. Í sumarúthlutunum verður áfram notast við fyrirkomulagið fyrstur kemur, fyrstur fær. Opnað verður fyrir sumarúthlutun þann 1. mars næstkomandi klukkan 12:00. Sú breyting verður þó gerð að leigutími vikunnar verður ekki lengur frá föstudegi til föstudags, heldur frá miðvikudegi til miðvikudags.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Félag skipstjórnarmanna notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á skipstjorn.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur