Páll Ægir Pétursson hefur verið ráðinn á skrifstofu félagsins, hann hefur undanfarin ár starfað sem skipstjóri á Norskum tankskipum. Páll Ægir hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem kennari við stýrimannaskólann, deildarstjóri hjá Slysavarnarfélaginu og skipstjóri til margra ára á fraktskipum, íslenskum og erlendum, auk annarskonar skipa.
Páll Ægir hefur verið í vinnu þessa viku á skrifstofunni, en mun hefja störf um leið og hann losnar frá Norðmönnunum, líklega í júlí eða ágúst.