Opnað verður fyrir umsóknir um orlofsleigu bústaða og íbúða á Akureyri og Stykkishólmi um páskana 2014 á mánudaginn 10. febrúar kl. 12:00 (ef tæknin svíkur ekki). Leigutímabil er frá kl. 17:00 á miðvikudegi fyrir Skírdag til annars í páskum. Um úthlutun gildir að fyrstur kemur fyrstur fær.
Opnað verður fyrir umsóknir um orlofsleigu bústaða og íbúða á Akureyri og í Stykkishólmi föstudaginn 14. febrúar kl. 12:00 (með fyrirvara um sömu tækni og áður).Umsóknarfrestur er til og með 7. maí og úthlutað verður skv. reglugerð um orlofshús FS í kjölfarið. Það skiptir því ekki máli um úthlutun hvenær sótt er um innan þessa tímaramma.