Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. janúar 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 6,6%
Óslægður þorskur hækkar um 3,4%
Slægð ýsa hækkar um 3%
Óslægð ýsa hækkar um 3%
Karfi hækkar um 6,6%
Ufsi hækkar um 4,2%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 7. janúar 2019.