Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. maí 2020, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur lækkar um 7,2%
Óslægður þorskur lækkar um 8,8%
Slægð ýsa lækkar um 10,8%
Óslægð ýsa hækkar um 1,9%
Karfi lækkar um 5%
Ufsi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 6. maí 2020