Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 1,0%
Óslægður þorskur hækkar um 2,0%
Slægð ýsa lækkar um 3,2%
Óslægð ýsa helst óbreytt
Slægður og óslægður ufsi hækkar um 3,7%
Karfi hækkar um 2%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. janúar 2021