Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum áslægðum þorski og karfa um 5 %. Einnig var ákveðið að hækka viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa um 2,2 %. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2016.