Lögmenn LEX
Félag Skipstjórnarmanna er með samning við LEX LÖGMANNSSTOFU sem sinnir lögfræðilegum verkefnum fyrir félagið og félagsmenn þess. Lilja Jónasdóttir er lögmaður okkar. Félagsmönnum gefst kostur á viðtali við Lilju án endurgjalds. Félagsmenn geta snúið sér til FS eða beint til Lilju þurfi á lögfræði þjónustu að halda. Komi til frekari vinnu Lilju eða annarra lögmannanna greiða félagsmenn sjálfir þá þjónustu. Lögmannsþjónusta fyrir félagsmenn FS er ekki einungis vegna launa- og kjaramála félagsmanna, heldur einnig vegna annarra mála sem upp kunna að koma, til dæmis vegna umferðar- og vinnuslysa, sem Lilja hefur mikla reynslu af.
LEX LÖGMANNSSTOFA er staðsett í Borgartúni 25 í Reykjavík.
Símanúmer hjá LEX er 590-2600
Einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netföngin lilja@lex.is eða lex@lex.is