Viðræður um endurnýjun kjarasamnings Félags skipstjórnarmanna og SFS fara nú fram hjá Ríkissáttasemjara. Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands funda saman.
Haldnir hafa verið tveir fundir hjá Ríkissáttasemjara þar sem samningsmarkmið hafa verið skýrð. Stefnt er að því að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir lok maí. Næsti samningafundur er boðaður föstudaginn 9. apríl næstkomandi.