Aðalfundur Félags skipstjórnarmanna 4. júní 2021

Aðalfundur Félags Skipstjórnarmanna verður haldinn föstudaginn 4.júní 2021 á Grand Hótel í Hvammi, 1.hæð  Kl. 14:00. Dagskrá Kosning fundarstjóra og ritara. Skýrsla stjórnar. Endurskoðaðir reikningar félagsins og sjóða þess lagðir fram og bornir undir atkvæði. Umræður um skýrslu formanns og ársreikninga. Lagabreytingar. Kjaramál. Kjör fulltrúa félagsins í stjórnir, ráð og nefndir. Önnur mál. ATH.   Fundurinn […]

Nýtt viðmiðunarverð 4. maí 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. maí 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur lækkar um 4,2% Óslægður þorskur lækkar um 4,5% Slægð ýsa hækkar um 6,8% Óslægð ýsa hækkar um 2,2% Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur Karfi helst óbreyttur […]

Björgun ehf. stýrimaður

STÝRIMAÐUR Björgun leitar að reyndum stýrimanni á dæluskipið Sóley, en Sóley er notuð til að afla hráefnis til vinnslu í landi, til dýpkunar og landgerðar. Björgun er rótgróið fyrirtæki sem skipar öflugum hópi starfsmanna við útgerð og efnisvinnslu. Hjá Björgun sameinast áratuga þekking og reynsla á efnisvinnslu og lausnum, lögð er áhersla á vinnubrögð þar […]

Ný skýrsla frá Kjaratölfræðinefnd

Föstudaginn 30. apríl 2021, kl. 10.00 -10:40, verður kynnt vorskýrsla Kjaratölfræðinefndar, samstarfsvettvangs um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag. Í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn, þróun efnahagsmála og launa. Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður í gegnum heimasíðu Kjaratölfræðinefndar, www.ktn.is. Edda Rós Karlsdóttir, formaður […]

Nýtt viðmiðunarverð 7. apríl 2021

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 7. apríl 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:   Slægður þorskur lækkar um 5,0% Óslægður þorskur lækkar um 9,3% Slægð ýsa hækkar um 4,6% Óslægð ýsa hækkar um 4,2% Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur Karfi […]

Kjaraviðræður skipstjórnarmanna hjá Sáttasemjara

Viðræður um endurnýjun kjarasamnings Félags skipstjórnarmanna og SFS fara nú fram hjá Ríkissáttasemjara.  Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands funda saman. Haldnir hafa verið tveir fundir hjá Ríkissáttasemjara þar sem samningsmarkmið hafa verið skýrð.   Stefnt er að því að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir lok maí.  Næsti samningafundur er boðaður föstudaginn 9. apríl næstkomandi.  

Birgir Sigurjónsson lætur af störfum.

Á dögunum færðum við Birgi Sigurjónssyni skipstjóra blómvönd og kveðjugjöf í tilefni þess að hann var að hætta sem umsjónarmaður íbúða félagsins.  Birgir var ráðinn umsjónarmaður árið 2007, hann hefur sinnt því mikilvæga starfi með sóma auk þess sem hann tók að sér smærri viðhaldsverkefni á íbúðum og sumarhúsum félagsins.  Við þökkum Birgi kærlega fyrir […]

Félag skipstjórnarmanna notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á skipstjorn.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur