Golfmót FS fór fram á Keilisvelli í gær fimmtudaginn 11. september.
Golfkapteinn ársins var sá sami og í fyrra, Axel Ágústsson. Í öðru sæti var Birgir Kjartansson og Eiríkur Jónsson í því þriðja. Völlurinn var frábær, en töluverður vindur gerði mönnum erfiðara fyrir. Þátttakendur voru ánægðir með skemmtilega samveru þótt skorið hefði mátt vera betra.