Kæru félagsmenn. Akureyri Fundur verður haldinn á veitingastaðnum Strikinu, norðursal, á 5. hæð að Skipagötu 14 Akureyri kl. 1400 þann 28. desember. Léttar veitingar Félagar fjölmennið Stjórnin Reykjavík Fundur verður haldinn að Hvammi á jarðhæð Grand Hótels Reykjavík þann 29. desember og hefst kl. 1400 Létta veitingar Félagar fjölmennið Stjórnin
Author Archives: tfadmin
Það var skiptidagur hjá skipstjórunum á Lagarfossi í gær, Magnús Harðarson til vinstri var að taka við af Jóni Inga Þórarinssyni. Það lá vel á þeim félögum þrátt fyrir bræluskít í hafinu undanfarið og útlit fyrir áframhaldandi brælu.
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. desember 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 3,5% Óslægður þorskur hækkar um 6,0% Slægð ýsa hækkar um 3,5% Óslægð ýsa lækkar um -7,7% Karfi helst óbreyttur Ufsi lækkar um -3,2% Þetta á […]
Á þingi Farmanna-og fiskimannasambandsins var lögð fram og samþykkt samhljóða eftirfarandi tillaga: Tillaga formanna allra aðildarfélaga FFSÍ. Þ.e.a.s. Félags skipstjórnarmanna, Vísis, Verðanda, Félags Bryta og Félags Ísl. Loftskeytamanna um að Félag skipstjórnarmanna taki við hlutverki FFSÍ og sambandið verði lagt niður. Af ofangreindu tilefni hafa formenn FS, Vísi og Verðanda fundað og sammælst um það […]
Ályktun um hlut stýrimanns á beitningavélabátum. þing FFSÍ haldið dagana 23. og 24. nóvember 2017, vill að gefnu tilefni vekja athygli útgerða á smærri línubátum á bilinu 12 til 15 metrar að lengd skal vera stýrimaður og ber að greiða stýrimanni 1 ½ hásetahlut. Greiðsla launa undir því lágmarki er klárt samningsbrot. Greinargerð: Að undanförnu […]
Félagsmaður og velunnari félagsins Guðmundur Kr. Kristjánsson færði félaginu málverk eftir sig af togaranum Jóni Þorlákssyni RE-204 og flugvél Landhelgisgæslunnar TF RÁN. Sigurður Á. Kristjánsson bróðir Guðmundar var um tíma skipstjóri á Jóni Þorlákssyni. Skipið var smíðað í Englandi 1949 fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur. Skipið var selt 10.jan 1974 Sjótaki h/f í Rvk og hét eftir […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. nóvember 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 3% Óslægður þorskur hækkar um 5,0% Slægð ýsa óbreytt Óslægð ýsa – 5% Karfi óbreytt Ufsi hækkar um 1,3% Þetta á við afla sem ráðstafað […]
Þingið verður sett kl.13.00 þann 23. nóvember og fer fram á Hótel Nordica Reykjavík og líkur síðdegis þann 24. nóvember. Fundarsalir F ig G á II hæð hótelsins.
Það er gott að hafa áhugamál þegar maður er hættur til sjós, Guðmundur Kr. Kristjánsson var skipstjóri hjá Eimskip til margra ára, eitt af áhugamálum hans er að mála, oftast skip og vita, en einnig ýmislegt annað. Guðmundur kom færandi hendi og gaf félaginu málverk af togaranum Apríl RE-151. Þetta mun vera fyrsti togarinn með […]
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 6. september 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt: Slægður þorskur hækkar um 3,0% Óslægður þorskur hækkar um 3,0% Slægð ýsa hækkar um 2,0% Óslægð ýsa helst óbreytt Karfi hækkar um 3,0% Ufsi hækkar um 2,6% Þetta á […]