Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. júní 2024, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Sl. þorskur hækkar um 2%
Ósl. þorskur helst óbreyttur
Sl. ýsa helst óbreytt
Ósl. ýsa helst óbreytt
Karfi lækkar um 4%
Ufsi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. júní 2024. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.