Leiðbeiningar vegna Covid-19
Ítarupplýsingar Almannavarna um sóttvarnir hafna og skipa, sjá hér
Leiðbeiningar frá Landlækni til að fyrirbyggja sýkingar af völdum COVID-19, sjá hér
Einstaklingur sem kemur frá skilgreindu áhættusvæði er ekki heimilt að koma um borð.
Einstaklingur sem sýnir flensueinkenni er ekki heimilt að koma um borð.
Einstaklingi sem hefur umgengist einstaklinga sem eru með Covid-19 er ekki heimilt að koma um borð.
Áður en haldið er úr höfn skal skipstjóri/útgerð ræða við áhöfnina um hvers ber að gæta við að verjast smiti (handþvottur, notkun handspritts, aukin þrif og sótthreinsun snertifleta, matsveinn skammti á diska o.s.frv.)
Áhöfnin skal við upphaf veiðiferðar upplýst um viðbragðsáætlun útgerðar ef smit kemur upp um borð. Fyrstu tvær vikur veiðiferðar skipta höfuð máli.
Grunur um smit
Hafið samband strax við Stjórnstöð LHG/112 og Landlæknisembættið/1700. Látið útgerðarstjórn skipsins einnig vita strax
Skipstjóri skal setja viðkomandi strax í tímabundna einangrun. Ekki er heimilt að flytja hann á milli klefa, hann skal vera áfram í sínum klefa með aðgengi að snyrtingu og sturtu sem öðrum er ekki heimilt að nota á meðan. Skipstjóri ráðfærir sig við LHG/112 og Landlæknisembættið/1700 og útgerðarstjórn skipsins.
Skipstjóri ber ábyrgð á öllum aðgerðum og ákvarðanatökum.
Skipstjóri skal tilgreina einn úr áhöfn sem hefur leyfi til að umgangast þann sem er í sóttkví og færa honum mat og aðrar nauðsynjar. Sami aðili skal sjá um hann allan tímann á meðan hann er í sóttkví. Sá aðili skal klæðast viðeigandi hlífðarbúnaði (einnota hanskar, grímur, plastsvuntur). Öðrum er óheimilt að umgangast hann.
Allan búnað sem viðkomandi einstaklingur þarf á að halda í einangrun skal ekki blanda saman við annan búnað áhafnar. Matarstell, búnaður og föt skulu þvegin sér og skal sá sem tekur við því klæðast hlífðarbúnaði (einnota hönskum, grímu og plastsvuntu) og setja beint í þvott og sótthreinsun.
Áður en komið er til hafnar
Undirbúið skipið og þann sem er í sóttkví áður en komið er til hafnar samkvæmt ráðleggingum frá LHG/112 og Landlæknisembættinu.
Mikilvægt er að aðrir úr áhöfn fari ekki frá borði.
Eftir að sjúklingur er farin frá borði
Mikilvægt er að sótthreinsa svæði þar sem sá sem var í sóttkví hefur dvalið.