Um kjaramál fiskimanna
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands haldin dagana 27.og 28. nóvember 2014, ályktar að kröfur LÍÚ (SFS) um kjaraskerðingu á hendur sjómönnum séu óverjandi og í algjörri mótsögn við einstaklega góða rekstrarafkomu sjávarútvegsfyrirtækja. Ráðstefnan mótmælir margra ára gamalli kröfugerð sem er ekki neinu samræmi við afkomu greinarinnar og ennfremur því að opinber álagningarstefna stjórnvalda á atvinnugreinina eigi að hafa neikvæð áhrif á kjör sjómanna.
Um verðmyndun sjávarafla.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, haldin dagana 27. og 28. nóvember 2014, skorar á hlutaðeigandi yfirvöld að beita sér með öllum ráðum fyrir því að sjávarafli á Íslandi verði verðlagður í gegnum uppboðsmarkaði eða afurðaverðstengdur.
Greinargerð:
Ekki verður lengur við það unað að verðlagning á sjávarafla sé með þeim hætti sem raun ber vitni. Árum saman hefur verið ófriður og megn óánægja með núverandi kerfi.
Ráðstefnan lýsir yfir að deilur um fiskverð verði aldrei leystar nema að allur fiskur verði seldur á uppboðsmörkuðum eða beintengdur markaðsverði. Aðrar lausnir munu aðeins halda deilunni gangandi um ókomin ár.
Um stjórnkerfi fiskveiða
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands haldin dagana 27. og 28. nóvember 2014 væntir þess að það frumvarp sem lagt verður fyrir Alþingi á næstu dögum og byggir á tillögum Sáttanefndar verði til þess að losa um þann harða hnút sem staðið hefur kjarasamningsviðræðum hagsmunaaðila fyrir þrifum allt frá hruni.
Viðvarandi óvissa um framtíðarfyrirkomulag á stjórn fiskveiða hefur leitt af sér algjöra kyrrstöðu í kjarasamningsviðræðum sjómanna og útvegsmanna sem mál er að linni. Tæp fjögur ár eru síðan kjarasamningur LÍÚ (SFS) og stéttarfélaga sjómanna rann út.
Ályktun til Samkeppnisstofnunar
Formannaráðstefna FFSÍ haldin dagana 27. og 28. nóvember 2014 beinir því til Samkeppnisstofnunar að hún skoði nú þegar hvort sala og verðlagning á fiski í beinum viðskiptum milli skyldra aðila standist samkeppnislög.
Vaxandi brögð eru á því að fiskmarkaðir annist bein viðskipti milli óskyldra aðila í gegnum fiskmarkaði, öllu jöfnu á svipuðu verði og í gangi eru á uppboðsmarkaði. Sá gríðarlegi mismunur á verðlagningu sem fram kemur á milli þessara mismunandi ráðstöfunaraðferða getur vart verið forsvaranlegur.
Um starfsemi Hafrannsóknastofnunar.
Formannaráðstefna FFSÍ haldin 27. og 28. nóvember 2014 telur brýnna en nokkru sinni að stórauka veiðarfæra-, haf- og fiskirannsóknir. Aukin þekking á þessum sviðum er algjör grunnforsenda fyrir betri nýtingu á auðlindum hafsins. Ómæld verðmæti fara forgörðum að óbreyttu ástandi. Það er algjör lágmarkskrafa að tryggt sé að rannsóknarskip stofnunarinnar séu nýtt til rannsókna af fullum krafti allt árið, en liggi ekki í höfn langtímum saman vegna fjárskorts.
Ályktun um Landhelgisgæslu Íslands.
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands haldið dagana 27. og 28. nóvember 2014 skorar á stjórnvöld að tryggja Landhelgisgæslu Íslands nægjanlegt fjármagn til reksturs skipa stofnunarinnar. Það er óviðunandi að skip Landhelgisgæslunnar liggi bundin við bryggju meirihluta ársins. Það eru lágmarkskröfur að minnsta kosti einu skipi sé haldið á miðunum kringum landið á hverjum tíma. Öryggi sjófarenda er í húfi.
Greinargerð:
Um allt of langan tíma hafa fjárveitingar til útgerðar skipa Landhelgisgæslunnar verið skornar við trog. FFSÍ sem hagsmunaaðili skipstjórnarmanna á íslenskum skipum, hverju nafni sem þau nefnast, finnur fyrir áhyggjum sinna skjólstæðinga vegna þessa. Brýnt er að bæta úr þessu strax.
Um sjómannaafslátt
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands haldin dagana 27. og 28. nóvember 2014 krefst þess að stjórnvöld skili sjómönnum til baka þeim sjálfsagða rétti sem þeir hafa notið í meira en 50 ár.
Greinargerð.
Hjá öllum siðmenntuðum þjóðum þar sem sjómennska er stunduð njóta sjómenn skattalegra hlunninda vegna sérstöðu starfsins. Ísland sker sig algjörlega úr í samanburði við aðrar þjóðir að þessu leiti. Norræna velferðarsamfélaginu, sem stjórnmálamenn vísa ósjaldan í sem okkar fyrirmynd er gefið langt nef, þar sem sjómenn allra norðurlanda njóta margfaldra hlunninda umfram þau sem búið er að svipta íslenska sjómannastétt.
Ályktun um útgerð kaupskipa
Formannaráðstefna Farmanna- og fiskimannasambands Íslands haldin dagana 27.-28. nóvember 2014, krefst þess að stjórnvöld tryggi að útgerð kaupskipa á Íslandi verði samkeppnishæf í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi greinarinnar. Íslensk kaupskipaútgerð er þegar aflögð en tryggja verður að atvinnugreinin geti lifnað við og átt möguleika til framtíðar. Ljóst má vera að inn- og útflutningur þjóðarinnar mun ávallt byggjast á sjóflutningum.
Greinagerð
Stjórnvöld hafa ekki sýnt að þau geri sér grein fyrir mikilvægi þess að kaupskipaútgerð fái þrifist á Íslandi. Búa þarf kaupskipaútgerð samkeppnishæft skattaumhverfi til samræmis við það sem alþjóðleg útgerð býr við. Það er ekki frjáls þjóð sem ekki ræður yfir kaupskipaflota sínum.
Hráefni til stóriðju sem og afurðir stóriðju eru að langstærstum hluta flutt að og frá landinu með skipum í eigu erlendra aðila og mönnuð erlendum sjómönnum. Sama gildir um útflutning á sjávarafurðum. Nú er svo komið að aðeins eru 7 kaupskip mönnuð sjómönnum búsettum á Íslandi.
Ályktun um hvalveiðar
Sem fyrr lýsir FFSÍ yfir afdráttarlausum stuðningi við hvalveiðar og varar eindregið við vanmati á þeim áhrifum sem afrán hvalstofna hefur á þá nytjastofna sem mesta þýðingu hafa.