Viðhorfskönnun

Sælir félagar. Í dag þann 20. janúar verða póstlögð bréf til allra virkra félaga sem starfa á fiskiskipaflotanum. Tilgangurinn er sá að kanna viðhorf ykkar til þeirrar stöðu sem uppi er varðandi kjarasamninga fiskimanna. Sú afstaða sem fram kemur frá ykkur mun hafa mikil áhrif á hvernig félagið beitir sér í framhaldinu í kjaraviðræðunum. Komin […]

Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2016

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðri ýsu um 5% og jafnframt að lækka karfa um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. janúar 2016.

Dagskrá 47. þings Farmanna-og fiskimannasambandsins

Til þingfulltrúa                                       Dagskrá 47. þings FFSI.   Haldið dagana 26. og 27. nóvember að Grand Hótel Reykjavík.                               Salur.  Háteigur  A 4. Hæð.   Fimmtudagurinn 26.  nóvember.   Kl. 09:45  Afhending þingskjala Kl.  10:00  Setning   Árni Bjarnason forseti FFSÍ […]

Verðbreytingar 2. október 2015

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. október 2015 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 5%. Einnig var ákveðið að lækkaviðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. október 2015.