Nýtt viðmiðunarverð 2. desember 2016

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. desember 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á óslægðum þorski um 5% og að sama skapi slægða og óslægða ýsu. Slægður og óslægður ufsi lækkar jafnframt um 3,7%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur […]

Verðbreytingar 2.október

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. nóvember 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningumáslægðum og óslægðum ufsa um 2,9%   og  karfa um 4 %.  Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. nóvember 2016.

Breytingar á viðmiðunarverði 2. september 2016

Á fundi úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna þann 2. september 2016 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð á óslægðum þorski um 8%. Viðmiðunarverð á slægðri ýsu lækkar um 5% og viðmiðunarverð á karfa lækkar um 8%. Viðmiðunarverð á slægðum og óslægðum ufsa lækkar um 5,5%. Framangreindar lækkanir á viðmiðunarverðum taka gildi 2. september 2016.

Skrifað undir samning við SFS

Í dag föstudaginn 24. júní var skrifað undir kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi að hálfu Farmanna-og fiskimannasamband Íslands og Sjómannasambands Íslands. Samningurinn verður í framhaldinu kynntur fyrir félagsmönnum aðildarfélaga FFSÍ og SSÍ sem munu kveða upp úr með samþykkt eða sinjun samningsins, en atkvæðagreiðsla mun standa til 8. ágúst.