Category Archives: Fréttir

Verðbreytingar 2. október 2015

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. október 2015 var ákveðið að lækka viðmiðunarverð skv. kjarasamningum á slægðum og óslægðum þorski um 5%. Einnig var ákveðið að lækkaviðmiðunarverð á slægðri og óslægðri ýsu um 5%. Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. október 2015.

Breytt orlofsúthlutun

Orlofsúthlutun í sumar á orlofstíma í bústaði FS ( 3 bústaðir á Laugarvatni, bústaðurinn í Hraunborgum í Grímsnesi og í Úlfsstaðaskógi á Fljótsdalshéraði sem er nýr orlofskostur) og íbúðir FS á Akureyri verða með breyttu sniði í ár. Ákveðið hefur verið að fyrirkomulagið „fyrstur kemur fyrstur fær“ komi í stað úthlutunar samkvæmt punktakerfi sem gilt hefur […]

Skipstjóri á víkingaskip óskast

Félaginu barst fyrirspurn um hvort vitað væri um skipstjórnarmann til að taka að sér þetta verkefni. Þar sem þetta skemmtilegt verkefni í flóruna er þetta birt hér. Það skal tekið fram að félagið á ekki kjarasamning um skipstjórn á víkingaskipum, en aðstoð við gerð ráðningarsamnings fæst hjá félaginu. Skipstjóri óskast á víkingaskip Óskum eftir skipstjóra til […]

Úrslit í golfmóti FS

GOLFKAPTEINN ÁRSINS 2015

Mótið fór fram á Garðavelli á Akranesi mánudaginn 31. ágúst í blíðskapar veðri. Í fyrsta skipti frá upphafi kom sigurvegairnn úr röðum eiginkvenna félagsmanna. Þau Ólöf Baldursdóttir og Ragnar Ólafsson áttu bæði frábæran dag og enduðu á 40 punktum. Ólöf reyndist hafa leikið aðeins betur á seinni níu holunum og stóð því uppi sem sigurvegari. […]