Viðmiðunarverð í gildi frá 5. maí 2026

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. maí 2026, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 3,1%

Ósl. þorskur lækkar um 2,0%

Sl. ýsa lækkar um 3,0%

Ósl. ýsa lækkar um 3,0%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. maí 2026. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.