Viðmiðunarverð í gildi frá 5. febrúar 2025

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. febrúar 2025, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur hækkar um 3,0%

Ósl. þorskur hækkar um 1,0%

Sl. ýsa hækkar um 8,7%

Ósl. ýsa hækkar um 8,7%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. febrúar 2025. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.