Viðmiðunarverð í gildi frá 5. ágúst 2026

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. ágúst 2026, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur lækkar um -2,5%

Ósl. þorskur helst óbreyttur

Sl. ýsa hækkar um 6,9%

Ósl. ýsa hækkar um 6,9%

Karfi helst óbreyttur

Ufsi hækkar um 8,4%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. ágúst 2026. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.