Viðmiðunarverð í gildi frá 2. september 2025

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. september 2025, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Sl. þorskur helst óbreyttur

Ósl. þorskur helst óbreyttur

Sl. ýsa helst óbreytt

Ósl. ýsa helst óbreytt

Karfi helst óbreyttur

Ufsi lækkar um -5,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. september 2025. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.