Úrslit í golfmóti Félags skipstjórnarmanna 2024

Í gær 19. ágúst fór fram árlegt golfmót FS, á Urriðavelli, Golfklúbbnum Oddi, keppendur voru 32. Fyrsta holl var ræst út kl. 08.03, í köldu veðri, sól og logni, þegar líða tók á morguninn hlýnaði og gerði smá golu. Menn höfðu á orði að Urriðavöllur væri fallegasti golfvöllur landsins, vel hirtur og til fyrirmyndar. Tilgangur mótsins er að félagsmenn og gestir þeirra hafi gaman saman og etji kappi í bróðerni.

Golfkapteinn ársins 2024 er Jóhannes Þór Sigurðsson hafnsögumaður í Reykjanesbæ.

Úrslit flokki skipstjórnarmanna:

  1. sæti    Jóhannes Þór Sigurðsson 32 punktar.
  2. sæti    Ólafur Pétur Pétursson 30 punktar.
  3. sæti    Eiríkur Jónsson 28 punktar.

Úrslit í flokki gesta:

  1. sæti    Helga Guðmundsdóttir 34 punktar.
  2. sæti    Elliði Aðalsteinsson 32 punktar.
  3. sæti    Garðar Þormar Pálsson 31 punktar.

Við óskum vinningshöfum til hamingju, þökkum góða þáttöku og skemmtilega samveru.