Úrslit í golfmóti 2017

Golfmót 2017

Mótið fór fram á Keilisvelli í Hafnarfirði mánudaginn 4.september, þáttakendur fengu ýmsar útgáfur af veðri, en segja má að veður hafi að meðaltali verið gott.

Í fyrsta sæti varð Axel Ágústsson á 39 punktum. Í öðru sæti var Árni Bjarnason á 35 punktum og í þriðja sæti Ingvi Rúnar Einarsson á 31 punkti.

Hjá konunum voru úrslit sem hér segir, Helga Ingibjörg Reynisdóttir á 29 punktum, Valgerður Bjarnadóttir á 27 punktum og Ólöf Baldursdóttir á 26 punktum.

Hamingjuóskir til sigurvegarans sem skartar titlinum GOLFKAPTEINN ÁRSINS í þriðja sinn.

Golfdeild FS þakkar þátttakendum fyrir skemmtilega samverustund.