Nýtt viðmiðunarverð 5. júlí 2018

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. júlí 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 2,0%
Óslægður þorskur hækkar um 3,1%
Slægð ýsa hækkar um 2,4%

Óslægð ýsa hækkar um 5,0%

Karfi hækkar um 2,5%

Ufsi helst óbreyttur.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. júlí 2018.