Nýtt viðmiðunarverð 4. mars 2019

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. mars 2019, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur helst óbreyttur

Óslægður þorskur helst óbreyttur

Slægð ýsa helst óbreytt

Óslægð ýsa helst óbreytt

Karfi helst óbreyttur

Ufsi lækkar um 1,4 %

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. mars 2019.