Kosning formanns og stjórnar í Félagi skipstjórnarmanna

Kæru félagsmenn,

Rafræn kosning til stjórnar í Félagi skipstjórnarmanna kjörtímabilið 2024 – 2028 hefst í dag 8. maí kl. 15:00, kosningin stendur yfir til kl.15:00 þann 30. maí 2024.

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar eru á heimsíðu félagsins hér.

Heimild til að kjósa hafa fullgildir félagsmenn, hlekkur á kjörseðil er hér.

 

Úrslit kosninganna verða kynnt á aðalfundi félagsins sem haldinn verður föstudaginn 31. maí 2024 á Grand Hótel Reykjavik kl. 14:00.

Streymt verður frá fundinum.