Golfmót Félags skipstjórnarmanna fer fram mánudaginn 24. ágúst.
Mótið verður á Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og hefst kl. 08:00. Ræst er út frá 1. teig og er ræsingin rúllandi.
Hægt er að skrá sig hér:
ATH. Þetta er lokað mót fyrir félagsmenn í Félagi skipstjórnarmanna, félagsmanni er heimilt að taka með sér einn gest.
Félagsmenn skrá sig í A flokk, gestir í B (gestaflokk).
Leiknar verða 18 holur. Keppt verður um titilinn Golfkapteinn ársins. Keppt er í punktakeppni með hámarks leikforgjöf 28.
Nándaverðlaun á öllum par 3 holum. Þátttökugjald er kr. 7.000.- pr. mann. Verðlaun eru veitt þremur efstu í flokki skipstjórnarmanna og með sama hætti þremur efstu í hópi gesta. Bikarinn ¨Golfkapteinn ársins¨ er farandgripur þar sem nafn sigurvegara er greipt á gripinn. Sigurvegarinn heldur gripnum þar til keppt verður um hann á ný að ári liðnu. Aðeins skipstjórnarlærðir menn eiga möguleika á að vinna bikarinn. Vinni sami aðilinn bikarinn þrisvar sinnum þá hlýtur sá snillingur bikarinn til eignar. Léttar veitingar í mótslok.
Hlökkum til að sjá ykkur mánudaginn 24. ágúst!

